21. maí – annar í hvítasunnu
21. maí – annar í hvítasunnu Read More »
Í skólanum er starfandi leikhópur, leikhópurinn Lopi. Leikhópurinn hefur sett upp margar sýningar síðustu ár og nú á vorönn var ráðist í verkið Dúkkulísa eftir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. Það eru nemendur úr 7. – 10. bekk sem eru leikendur undir stjórn Magnúsar J. Magnússonar leiksstjóra. Nokkrar sýningar hafa verið haldnar síðustu vikur og verður síðasta
Leikhópurinn Lopi sýnir Dúkkulísu Read More »
Fréttaritari Stöðvar 2 kíkti við hjá okkur í BES á dögunum til að sjá hvað við erum að leggja mikið í lesturinn. Magnús skólastjóri, Hafdís bókavörður og Máni voru flott í tilsvörum! Smelltu á hlekkinn og sjáðu fréttina: http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTVFE2C0032-7EEF-4FF8-AD93-C77362942273
Lestrarhestar í BES í fréttunum Read More »
Á dögunum fór fram Íslandsmót í stökkfimi í Egilshöll. Fimleikadeild Ungmennafélags Stokkseyrar vann þar gullverðlaun í flokki karla yngri en strákarnir eru allir í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Á meðfylgjandi mynd má sjá strákana ásamt þjálfara sínum, Ásdísi Maríu Magnúsdóttur. Óskum við þeim til hamingju með þennan flotta árangur.
Flottir fimleikastrákar úr BES Read More »
Miðvikudaginn 25. apríl fluttu nemendur úr 6. bekk BES leikrit úr Snorrasögu fyrir foreldra og aðra vandamenn. Þar stóðu allir sig með prýði og eru áhorfendur mun fróðari um Snorrasögu eftir en áður. Það var virkilega gaman að sjá hvað þau höfðu lært efnið vel og hvað þeim tókst vel að koma því til skila
Leikrit úr Snorrasögu Read More »
Þriðjudaginn 24. apríl var lokahátíð í litlu upplestrarkeppninni í 4. bekk í BES. Þar stigu nemendur á svið og lásu ýmis verk auk þess sem þeir fluttu tónlist milli atriða. Frammistaða nemenda og framkoma var til fyrirmyndar og það verður virkilega gaman að fylgjast með þeim í stóru upplestrarkeppninni þegar þau koma í 7. bekk.
Litla upplestrarkeppnin Read More »
Nemendur 9. bekkjar stunduðu kveðskap í íslenskukennslu á dögunum með kennara sínum ,Kareni Heimisdóttur. Skáldskapurinn fór fram við ströndina í vorblíðunni sem gleður okkur þessa dagana. Hér má sjá hluta afrakstur þeirrar vinnu, ljóðið heitir Í söltum sæ og er eftir Sindra Ragnarsson. Í söltum sæ Auður sjórinn elskar allt, annars allt með blautum
Kveðskapur við ströndina Read More »
Starfsmenn Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri óska nemendum, foreldrum og forráðamönnum gleðilegs sumars með þökkum fyrir veturinn sem er liðinn.