Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir

Flottur árangur í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna

Á dögunum fór Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fram í Háskóla Reykjavíkur. Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri átti sinn fulltrúa á keppninni en Sindri Immanúel Ragnarsson fékk þriðju verðlaun fyrir hugmynd sína: „Rafknúinn hurðalokari“, ætlaður fyrir  hænsnahús. Sannarlega glæsilegur árangur hjá hinum hugmyndaríka Sindra í 7. bekk.

Flottur árangur í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna Read More »

Góður árangur í eineltisvinnu við BES

Á dögunum birti vinnuhópur um Olweusaráætlunina í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri niðurstöður úr mælingum vetrarins á einelti í skólanum. Það gleður okkur að segja frá því að í fyrsta skipti mælist einelti í BES undir landsmeðaltali. Þó svo að markmiðið sé að útrýma einelti með öllu ber að hrósa fyrir það sem vel er

Góður árangur í eineltisvinnu við BES Read More »

Maritafræðsla í BES 3. maí

Forvarnarnefnd Árborgar býður nemendum 9. og 10. bekkjar upp á  forvarnarverkefnið Marita á þriðjudaginn 3. maí í skólanum. Verkefnið er fræðsluverkefni þar sem skaðsemi kannabis og annarra vímugjafa er rædd við nemendur. Um kvöldið er foreldrum boðið upp á fræðslu í húsnæði skólans á Eyrarbakka kl. 19:30-21:00. Þar sem um mjög stuttan fyrirvara er að

Maritafræðsla í BES 3. maí Read More »

Guggurnar slá í gegn í BES

Nemendur og starfsfólk BES urðu þess heiðurs aðnjótandi að fá til sín hina landsþekktu hljómsveit Guggurnar frá Hornarfirði í dag. Guggurnar léku fyrir troðfullu húsi á Rósenberg síðasliðna helgi og renndu við hjá okkur á leiðinni heim og fluttu sína frábæru tónleikadagskrá. Gera má ráð fyrir því að rólegt sé yfir hlutunum á Hornafirði þessa

Guggurnar slá í gegn í BES Read More »