Elsta jólatré landsins skreytt

Elsta jólatré landsins skreytt af 10.bekk

Í dag miðvikudaginn 22. nóvember þáðu nemendur 10.bekkjar boð frá Byggðarsafni Árnesinga um að skreyta eftirlíkingu af elsta jólatré landsins í Húsinu á Eyrarbakka. Upprunalega tréð, sem er spýtutré, er frá árinu 1873 er úr uppsveitum Árnessýslu. Byggðarsafnið eignaðist tréð árið 1955 og hefur það verið hluti af jólasýningu Hússins síðustu áratugi. Nemendur skreyttu eftirlíkinguna undir styrkri leiðsögn Lindu Ásdísardóttur safnvarðar, sem bauð upp á jólatónlist af hljómplötum, heitt kakó og piparkökur í leiðinni. Yndisleg hefð sem hefur skapast.