Að höfðu samráði við rakningateymi og eftir nánari athugun á eðli mála vegna smits við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri eru einungis 7 starfsmenn og 15 nemendur í 1. – 4. bekk í sóttkví ásamt sínum fjölskyldum. Aðrir stafsmenn og nemendur 2. -6. bekkja eru ekki í sóttkví.
Hins vegar óskum við stjórnendur BES eftir því að starfsmenn og nemendur sem fá boð um sýnatöku sinni því og fari í sýnatöku á morgun þriðjudag og haldi sig til hlés eins mikið og hægt er þar til niðurstaða liggur fyrir. Skólastarf liggur þ.a.l. niðri á morgun á yngra stigi.
Rakningarteymi sendi út rangar upplýsingar í tölvupósti og sms skilaboðum, boðað verður til sýnatöku á Selfossi á morgun. Nánari upplýsingar um það munu berast síðar í dag.
Við óskum eftir því að foreldrar/forráðamenn séu meðvitaðir um stöðuna, fylgist með hvort þeirra börn sýni einkenni og haldi börnunum heima ef svo er. Einnig að foreldrar/forráðamenn hafi samband við skólann ef einhverjar spurningar vakna.
Helstu einkenni Covid-19:
- hósti
- hiti
- andþyngsli
- kvef
- hálsbólga
- beinverkir
- höfuðverkir
- slappleiki
- ógleði
- niðurgangur
- skert lyktar- og bragðskyn
Bestu kveðjur,
Stjórnendateymi BES