Fréttir

Krakkar úr Barnaskólanum í Stundinni okkar

Stundin okkar kom í heimsókn til okkar í Barnaskólann í haust og hitti nokkra krakka úr skólanum. Heimsóknin var sýnd í Stundinni okkar þann 14. janúar síðastliðinn og hefst innslagið eftir 3 mínútur og 45 sekúndur. Okkar fólk tók sig vel út, sannarlega efnilegar fjölmiðlastjörnun þarna á ferð! Hlekkur á þáttinn er hérna: http://www.ruv.is/sarpurinn/ruv/stundin-okkar/20180114

Krakkar úr Barnaskólanum í Stundinni okkar Read More »

Jólaleyfi í Barnaskólanum

Jólamánuðurinn hefur sannarlega verið viðburðarríkur hjá okkur í Barnaskólanum. Við höfum gert okkur glaða daga með söng og samveru, föndri og fínum mat í bland við hlátur og hátíðleika.  Á dögunum opnuðum við jólagluggann við hátíðlega athöfn þar sem við sungum jólahreindýrinu Rúdolf til heiðurs en stafurinn okkar var einmitt stafurinn hans í ár. Við

Jólaleyfi í Barnaskólanum Read More »

Jólasöngur á aðventu

Hefð hefur skapast fyrir því að syngja jólin inn í Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri síðustu ár. Nú er starfsliðið þannig mannað að tekist hefur að mynda hljómsveit sem sinnir undirleik í jólasöngnum. Kennarahljómsveitin er skipuð þeim Kolbrúnu Huldu Tryggvadóttur, Rögnu Berg Gunnarsdóttur og Páli Sveinssyni. Hin nýja hljómsveit stóð sig með prýði og var

Jólasöngur á aðventu Read More »

Elsta jólatré landsins skreytt af 10. bekk

Þann 1. desember síðastliðinn þáðu nemendur 10. bekkjar boð frá Byggðarsafni Árnesinga um að skreyta elsta jólatré landsins í Húsinu á Eyrarbakka. Tréð, sem er spýtutré, er frá árinu 1873 er úr uppsveitum Árnessýslu. Byggðarsafnið eignaðist tréð árið 1955 og hefur það verið hluti af jólasýningu Hússins síðustu áratugi. Nemendur skreyttu tréð undir styrkri leiðsögn

Elsta jólatré landsins skreytt af 10. bekk Read More »

„Veggjakrot“ í umsjónarkennslu

Á dögunum prófuðu nemendur 9. bekkjar að æfa sig í að rökstyðja skoðanir sinar með kennsluaðferð sem kallast „veggjarkrot“. Bekknum var skipt í fjóra hópa og voru nokkrar mínútur á hverri stöð þar til á þeirri síðustu en þar las hópurinn sem endaði á þeirri stöð upp rökstuðning þeirra sem höfðu fest hugmyndir sínar á

„Veggjakrot“ í umsjónarkennslu Read More »