Fréttir

Veðurfar og klæðnaður

Nú hefur veðrið verið með ýmsum hætti síðustu daga og vikur. Þess vegna skiptir máli að nemendur komi í skólann í fötum sem þeir geta verið úti í. Meginreglan er að nemendur fari út í þeim hléum sem eru á vinnutíma þeirra í skólanum.  En þó  nemendur eigi að koma í viðeigandi fatnaði í skólans er […]

Veðurfar og klæðnaður Read More »

Olweus eineltiskönnun





Kæru foreldrar/forráðamenn nemenda í Barnaskólanum Eyrarbakka og Stokkseyri


Dagana 8. og 9. desember verður lögð eineltiskönnun fyrir nemendur í 4.-10.bekk Barnaskóla Eyrarbakka og Stokkseyrar.

Ef einhver nemandi óskar þess að taka ekki þátt verður sú ósk að koma skriflega með undirskrift nemanda og forráðamanns.


Könnun þessi er hluti af Olweusar-áætlun skólans og allir hlutaðeigandi munu taka þátt í forvarnaráætlun Barnaskóla Eyrarbakka og Stokkseyrar með það að markmiði að vinna markvisst gegn einelti, meðal annars með fyrirbyggjandi aðgerðum.

Það er ósk okkar og von að nemendur og foreldrar verði virkir með okkur í aðgerðaráætlun Olweusar gegn einelti.

_________________________________________________

Olweus eineltiskönnun Read More »

Fánadagur íslenskunnar





Í skólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri er hátíðardagskrá í tilefni dagsins.
Dagskrá hófst með ávarpi skólastjórnenda. Í framhaldi héldu nemendur í heimastofur og tóku til við bókagerð þar sem hver bók inniheldur a.m.k. eitt frumsamið ljóð eða sögu, ljóð eftir íslenskan höfund, myndir og skreytingar.
Eldri nemendur á Eyrarbakka heimsóttu nemendur á Stokkseyri og lásu fyrir þá ljóð og sögur. Dagskráin endar síðan með því að nemendur horfa á islenska kvikmynd.

________________________________________________________________

Fánadagur íslenskunnar Read More »

Annaskil


Kæru foreldrar/ forráðamenn
Nú líður að annaskilum hjá okkur. Vegna þeirra verður starfsdagur kennara mánudaginn 14. nóvember nk. og nemendur mæta því ekki í skólann þann dag.
Þriðjudaginn 15. nóvember verða viðtöl við foreldra og nemendur vegna námsmatsins og þess sem framundan er.  Öll viðtöl fara fram í skólanum á Stokkseyri.
Skólavistin Stjörnusteinar verður opin frá 8:00 – 17:00 báða dagana.
Miðönn með hefðbundinni  kennslu hefst síðan miðvikudaginn 16. nóvember.


Kv., –
Starfsfólk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri

________________________________________________

Annaskil Read More »