Gleðilegt ár og takk fyrir liðið.
Í gær mættu nemendur til starfa og var það kærkomið í hugum flestra þó margir væru þreyttir í morgunsárið svona fyrsta daginn. Í gær tóku nýjar stundaskrár gildi og hafa nemendur fengið þær afhentar.
Á morgun fáum við góðan gest í heimsókn en þá mun rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson koma og halda fyrirlestur fyrir nemendur í 9. og 10. bekk. Erindi Þorgríms kallast “ LÁTTU DRAUMINN RÆTAST”