Fréttasafn
Fréttir frá Barnaskólanum Eyrabakka og Stokkseyri
Júdómót
Í Barnaskólanum eru nokkrir hressir krakkar sem æfa júdó og hérna er mynd af þeim frá því á haustmóti Júdósambands Íslands um helgina. Grímur lenti í 1. sæti, Úlfur lenti í 2. sæti. Bjartþór lenti í 2. sæti, Hrafn lenti í 3. sæti […]
Fræðslufundur fyrir foreldra 7. – 10. bekkinga miðvikudaginn 17.10.
Mikilvægt! Fræðsla fyrir foreldra nemenda í unglingadeild BES verður haldinn miðvikudaginn 17. október kl. 18:30. Fyrirlesturinn ber heitið „Fjárfestum í tíma með börnunum okkar“ og er það Davíð Bergman Davíðsson meðferðarráðgjafi fjallar um áhættuhegðun unglinga í kjölfar fræðslu í 9. […]
Framkvæmdir við húsnæði skólans á Stokkseyri
Síðan á fimmtudag hefur vinnuhópur verið að leggja stéttar í kringum húsnæði skólans á Stokkseyri. Þegar því verki lýkur verða stéttar allt í kringum skólann. Þetta breytir umhverfi skólans verulega og auðveldar öllum að ferðast á milli húsa á skólalóðinni. […]
Vinna við tónlistarmyndband.
Sunnudaginn 7. október var hópur nemenda BES við upptöku á tónlistarmyndbandi á Eyrarbakka. Um var að ræða tónlistarmyndband með Ásgeiri Trausta. Vinnan við þetta hófst um 14.30 er 24 nemenda hópur úr 2. – 4. bekk mætti með reiðhjólin sín […]
Finnskur námsráðgjafi
Vikuna 15.- 19. október verður námsráðgjafanemi frá Finnlandi í heimsókn hjá okkur. Hún heitir Mari Lyyra og kemur til með að fylgja Guðrúnu Thorsteinsson námsráðgjafa í hennar störfum og tekur eins mikinn þátt í skólastarfinu og unnt er. Þeir sem hafa […]
Dagur ísl. tungu
Dagur íslenskrar tungu. Ýmis verkefni unnin í tilefni dagsins. Forvalskeppni fyrir lestrarkeppnina.
Annaskiladagur
Nemendur mæta í viðtal hjá sínum umsjónarkennara ásamt foreldrum. Upplýsingar um viðtalstíma verða sendar til foreldra með góðum fyrirvara.
Haustþing kennara 2012 breytingar á skólahaldi
Kæru forráðamenn! Hið árlega haustþing kennara verður haldið á Flúðum fimmtudaginn 4. október og föstudaginn 5. október. Vegna þessa verða eftirtaldar breytingar gerðar á kennslu nemenda: Fimmtudaginn 4. október er skólastarf óbreytt. Föstudaginn 5. október fellur skóli niður vegna haustþingsins. […]
