Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Nýr samningur við nemendur í 10. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 11. september 2012

  Mánudaginn 10. september var gengið frá undirritun á nýjum samningi milli Sveitarfélagsins Árborgar og nemenda í 10. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Nemendur taka að sér aðstoð í mötuneyti skólans og taka þátt í hádegisgæslu að höfðu samráði við skólastjórnendur og umsjónarkennara. Greiðslur fyrir þessa vinnu renna svo óskiptar í ferðasjóð 10. bekkinga.

Jákvæð samskipti

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 4. september 2012

Í nóvember 2011 var lögð fyrir nemendur 4. -10. bekkjar Olweusarkönnun og komu niðustöður hennar í febrúar og voru kynntar á fámennum foreldrafundi. Meðal þess sem könnunin leiddi í ljós var að samskipti milli nemenda eru oft og tíðum frekar slæm, orðhvöss og hörð og því má segja að nemendur hafa beðið um, í gegnum […]

Breyttur skólatími

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 23. ágúst 2012

Í vetur fefst skólastarf kl. 8:15 alla daga og breytist því akstur skólabíls sem því nemur.  Hér finnur þú áætlun skólabílsins. Daglegri stundaskrá nemenda í 1. – 4. bekk líkur kl. 13:15  og hjá 5. – 10. bekk kl. 13:55.  Öll stundaskrá er nú sett upp í 40 mín. töflu í stað 60 mínútna eins og […]

Breytingar á strafsfólki skólans

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 22. ágúst 2012

Eftirtaldar breytingar hafa orðið á starfsfólki skólans: Anna Berglind danskennari hefur hætt störfum og í hennar stað hefur Karen Hrund verið ráðin í danskennsluna. Katrín Andrésdóttir verkefnisstjóri sérkennslu hverfur frá störfum í vetur og hefur Sædís Ósk Harðardóttir verið ráðin í hennar stað. Ragnheiður Jónsdóttir þroskaþjálfi kemur til starfa í fullt starf sem þroskaþjálfi, einnig […]

Innkaupalistar

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 11. ágúst 2012

Innkaupalistar fyrir 1. – 7. bekk eru komnir á heimasíðuna og eru krækjur á þá að finna á bekkjarsíðum.