Jólaleyfi í Barnaskólanum
Jólamánuðurinn hefur sannarlega verið viðburðarríkur hjá okkur í Barnaskólanum. Við höfum gert okkur glaða daga með söng og samveru, föndri og fínum mat í bland við hlátur og hátíðleika. Á dögunum opnuðum við jólagluggann við hátíðlega athöfn þar sem við sungum jólahreindýrinu Rúdolf til heiðurs en stafurinn okkar var einmitt stafurinn hans í ár. Við […]
Jólasöngur á aðventu
Hefð hefur skapast fyrir því að syngja jólin inn í Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri síðustu ár. Nú er starfsliðið þannig mannað að tekist hefur að mynda hljómsveit sem sinnir undirleik í jólasöngnum. Kennarahljómsveitin er skipuð þeim Kolbrúnu Huldu Tryggvadóttur, Rögnu Berg Gunnarsdóttur og Páli Sveinssyni. Hin nýja hljómsveit stóð sig með prýði og var […]
Elsta jólatré landsins skreytt af 10. bekk
Þann 1. desember síðastliðinn þáðu nemendur 10. bekkjar boð frá Byggðarsafni Árnesinga um að skreyta elsta jólatré landsins í Húsinu á Eyrarbakka. Tréð, sem er spýtutré, er frá árinu 1873 er úr uppsveitum Árnessýslu. Byggðarsafnið eignaðist tréð árið 1955 og hefur það verið hluti af jólasýningu Hússins síðustu áratugi. Nemendur skreyttu tréð undir styrkri leiðsögn […]