Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Alþjóðlegur dagur barnabókarinnar

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 11. apríl 2016

Þann 2. apríl var alþjóðlegur dagur barnabókarinnar.  Eins og undanfarin 6 ár gaf IBBY á Íslandi ( IBBY er skammstöfun á enska heitinu The International Board on Books for Young People en það eru alþjóðleg samtök) grunnskólanemendum í 1.-10. bekk smásögu af gjöf, ekki er hverjum og einum nemenda færð smásagan heldur var hún lesin […]

Glæsileg árshátíð yngra stigs!

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 1. apríl 2016

Nú í morgun fór fram árshátíð yngra stigs og var hún sannarlega stórglæsileg. Nemendur 6. bekkjar fóru á kostum í leikrænum kynningum og hver bekkurinn átti frábæra stund á sviðinu í dag. Húsfyllir var á árshátíðinni og góð stemning eins og vera ber. Nemendur 10. bekkjar og foreldrar þeirra stóðu svo að dásamlegri kaffisölu sem […]

Súpufundur um netfíkn

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 31. mars 2016

Samborg í samvinnu við fræðslusvið Árborgar er með fyrirlestur 5. apríl kl 19:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla. Haldið verður áfram að fjalla um tölvuvanda og tölvufíkn barna og unglinga en Friðþóra Arna Sigþórsdóttir hélt fjölsótt erindi í byrjun mars. Núna mun Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur flytja erindi um um ofnotkun internetsins sem einnig hefur verið kölluð netfíkn. […]

Árshátíð yngra stigs 1. apríl

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 31. mars 2016

Árshátíð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri verður haldin í skólahúsinu á Stokkseyri  föstudaginn 01. apríl. Hátíðin hefst kl. 09:00 með hátíðardagskrá á sviði og síðan kaffiveitingum að henni lokinni. Nemendur mæta samkv. stundaskrá  í skólann. Þau þurfa því að hafa fínu fötin með sér í skólann að morgni eða bara koma í þeim! Eftirfarandi skipulag verður á […]

Yngra stig Barnaskólans verðlaunað fyrir lestur

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 22. mars 2016

Fimmtudaginn 17. mars voru veittar viðurkenningar fyrir lestrarátakið „Allir lesa“ í Barnaskólanum á Stokkseyri. Hafdís Sigurjónsdóttir skólabókavörður skólabókasafnsins veitti veglegri bókagjöf viðtöku fyrir hönd skólans af þessu tilefni frá www.allirlesa.is. Nú hafa 18 nýjar bækur bæst við safnið og má með sanni segja að þær hafi komist í góðar hendur. Nemendur á miðstigi sigruðu í […]