19. nóvember – Verkefnadagur kennara
19. nóvember – Verkefnadagur kennara Read More »
Á degi íslenskrar tungu, mánudaginn 16. nóvember, komu nemendur í 1.-6. bekk BES saman í hátíðarsal skólans á Stokkseyri. Eftir að hafa sungið eitt íslenskt þjóðlag, afhentu fulltrúar nemenda skólastjórnendum áskorun um bókakaup fyrir skólasafnið. Fyrr í haust kom upp sú hugmynd að efla lýðræðislega hugsun nemenda og sýna hversu máttug samstaða í verki getur
Á degi íslenskrar tungu Read More »
Á unglingastigi Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fer fram mjög öflug vinna í lestrarþjálfun unglinga. Unnið er með þjálfun lestarfærni og lesskilnings með þrennskonar hætti: Lestrarþjálfun Skólinn leggur áherslu á að allir unglingar 7. – 10. bekkja lesi upphátt fyrir stuðningsfulltrúa að minnsta kosti einu sinni í viku. Þar er leshraði og lesskilingur mældur. Skólinn
Lestrarmenning á unglingastigi Read More »
Nú í haust hóf teymi starfsmanna BES undirbúningsvinnu við innleiðingu heilsueflingar í skólann. Heilsueflandi grunnskóli er verkefni sem Landlæknisembættið stendur fyrir og tugir íslenskra grunn- og framhaldsskóla starfa samkvæmt. Heilsueflingarteymið vinnur að greiningarferli nú á haustönn og kynnig í kjölfarið hvernig BES mun vinna enn frekar að heilsueflingu í framtíðinni. Starfsmannahópurinn og nemendur eru sífellt
Heilsueflandi grunnskóli Read More »
Jól í skókassa í BES á Stokkseyri eru í dag, miðvikudaginn 4. nóvember kl. 17:00-18:30. Bæklingur um verkefnið fór í skólatöskur fyrir helgi og gaman væri að sjá sem flestar fjölskyldur sem tengjast skólanum taka þátt í þessu verkefni. Munið að hafa með ykkur – tóman skókassa – skæri og límstift – tannbursta og tannkrem –
Jól í skókassa miðvikudaginn 4. nóvember Read More »
Miðvikudaginn 28. október fór unglingastig BES í góða ferð á Selfoss. Dagurinn hófst með því að nemendur þáðu gestaboð Sunnulækjarskóla og sóttu leiksýninguna „Halldór á hundavaði“ í flutningi Hunda í óskilum. Þar gerðu „Hundarnir“ nokkrum verkum Halldórs Laxness skil með þeirra landsþekkta lagi. Að sýningu lokinni heimsóttu BES-arar Gunnar í félagsmiðstöðinni Zelsíus og Heiðrúnu í
Vettvangsferð unglingastigs á Selfoss Read More »
Á miðvikudag fara nemendur BES á unglingastigi á Selfoss að sjá sýninguna “Halldór á hundavaði” í umsjón Hunda í óskilum. Þar verður farið í gegnum feril Haldórs Laxness á einni klukkustund! Nemendaráð stendur svo fyrir Halloweendansleikjum sama dag, fyrir miðstig kl. 17-19 og unglingastig um kvöldið. Dansleikirnir fara fram í Draugasetrinu. Á fimmtudag fara nemendur
Halloween, Halldór á hundavaði og háskólaheimsókn Read More »
Sunnudaginn 25. október fóru hinir árlegu súputónleikar Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fram í samstarfi við Tónlistarskóla Árnesinga. Fram komu glæsilegir listamenn sem léku tónlist fyrir góða gesti sem fjölmenntu á þessa glæsilegu tónleika. Að þeim loknum var boðið upp á dásamlega súpu að hætti Hugrúnar matráðs. Gestir gátu greitt frjáls framlög í hljóðfærakaupasjóð en
Vel lukkaðir súputónleikar Read More »
Njálgurinn – hinn leiðinlegi og óvelkomni gestur hefur gert vart við sig hjá okkur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Við mælumst til þess að foreldrar og forráðamenn fari í öllu eftir leiðbeiningum um skoðun á sínum börnum og meðferð við njálgi ef hann finnst. Áríðandi er að foreldrar haldi börnum sínum heima þangað til
Sunnudaginn 25. október 2015 verða haldnir fjáröflunar- og súputónleikar í sal skólans á Stokkseyri. Núverandi og fyrrverandi nemendur skólans spila og syngja og einnig eru þarna starfsmenn og foreldrar sem koma fram. Hugmyndin með þessum tónleikum er að safna fyrir tónmenntastofuna okkar. Tónleikarnir hefjast kl. 12.00 og að þeim loknum er boðið upp á súpu og brauð
Fjáröflunar- og súputónleikar BES Read More »