Fréttir

Árshátíð yngra stigs 1. apríl

Árshátíð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri verður haldin í skólahúsinu á Stokkseyri  föstudaginn 01. apríl. Hátíðin hefst kl. 09:00 með hátíðardagskrá á sviði og síðan kaffiveitingum að henni lokinni. Nemendur mæta samkv. stundaskrá  í skólann. Þau þurfa því að hafa fínu fötin með sér í skólann að morgni eða bara koma í þeim! Eftirfarandi skipulag verður á […]

Árshátíð yngra stigs 1. apríl Read More »

Yngra stig Barnaskólans verðlaunað fyrir lestur

Fimmtudaginn 17. mars voru veittar viðurkenningar fyrir lestrarátakið „Allir lesa“ í Barnaskólanum á Stokkseyri. Hafdís Sigurjónsdóttir skólabókavörður skólabókasafnsins veitti veglegri bókagjöf viðtöku fyrir hönd skólans af þessu tilefni frá www.allirlesa.is. Nú hafa 18 nýjar bækur bæst við safnið og má með sanni segja að þær hafi komist í góðar hendur. Nemendur á miðstigi sigruðu í

Yngra stig Barnaskólans verðlaunað fyrir lestur Read More »

Góður árangur í Skólahreysti og upplestarkeppninni

Fimmtudaginn 10. mars gerðu nemendur unglingastigs góðar ferðir í Hveragerði og Garðabæ. Þá stóðu nemendur 7. bekkjar sig með prýði í Stóru upplestrarkeppninni og lið BES hafnaði í fjórða sæti í Skólahreysti, einungis tveimur stigum frá verðlaunasæti! Frábær árangur þetta og nemendur til fyrirmyndar í framkomu og fasi hvar sem þeir koma.

Góður árangur í Skólahreysti og upplestarkeppninni Read More »

Fulltrúar BES á Stóru upplestrarkeppninni

Á dögunum fór fram undankeppni nemenda 7. bekkjar BES fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin verður í Grunnskólanum í Hveragerði 10. mars næstkomandi. Nemendur stóðu sig með prýði í upplestri sínum og átti dómnefndin sem skipuð var þeim Magnúsi skólastjóra, Sigríði kennara og Halldóru kennara erfitt verk fyrir höndum að velja okkar fulltrúa. Þeir sem þóttu

Fulltrúar BES á Stóru upplestrarkeppninni Read More »

Miðstig BES sigraði í Allir lesa!

Í síðustu viku bárust þær gleðilegu fréttir að miðstig BES hefði sigrað lestarkeppnina í sínum flokki í Allir lesa, landsleikur í lestri sem staðið hefur yfir á þorranum – til hamingju með það og alveg hreint glæsilegur árangur hjá nemendum miðstigsins. Yngsta stigið var svo í fjórða sæti í sama flokki – sannarlega flottur árangur

Miðstig BES sigraði í Allir lesa! Read More »

Verkefnadagur, viðtalsdagur og vetrarfrí

Þriðjudaginn 23. febrúar er verkefnadagur kennara í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, nemendur eru í leyfi þann dag. Miðvikudaginn 24. febrúar er viðtalsdagur á Stokkseyri þar sem nemendur og foreldrar funda með umsjónarkennara um sína námsstöðu. Fimmtudaginn 25. og föstudaginn 26. febrúar er svo vetrarfrí. Skólavistin Stjörnusteinar er opin sem hér segir: Þriðjudag kl. 07:45-16:30

Verkefnadagur, viðtalsdagur og vetrarfrí Read More »