Starfsdagur – Haustþing kennara
Föstudaginn 24. september fer haustþing kennara á Suðurlandi fram og er dagurinn því skipulagður sem starfsdagur, engin kennsla fer fram þann daginn. Sjáumst hress og kát mánudaginn 27. september. Stjórnendur
Gróðursett á degi íslenskrar náttúru
Dagur íslenskrar náttúru var 16. september síðastliðinn. Þá gróðursettu nemendur og starfsmenn Barnaskólans nokkur hundruð tré í grennd við Eyrarbakka en skólinn er í samstarfi við Yrkjusjóð og Skógræktarfélag Eyrarbakka.
Unglinga- og ungmennaráðgjöf
Sveitarfélagið Árborg hefur ráðið til sín Unglinga- og ungmennaráðgjafann Ingu Þórs Yngvadóttir, sem sinnir ráðgjafaþjónustu fyrir börn á aldrinum 13-18 ára (frá 8. bekk). Starfið er þvert á deildir fjölskyldusviðs og samræmist það vel stefnu fagsviðsins um að hafa þjónustuna aðgengilega, koma henni að á fyrri stigum með góðri teymisvinnu milli deilda og alltaf með […]
Kraftmikil skólabyrjun
Það er óhætt að segja að skólastarf hafi byrjað af fullum krafti nú fyrstu daga skólaársins 2021-2022. Nemendur og starfsmenn hristu sig saman í leikjum og forvitnisgöngum um nærumhverfi og morgunsöngurinn fór af stað með glæsbrag.
Bólusetning við COVID-19 fyrir nemendur í 7.-10. bekk
Nú í ágúst verður boðið upp á bólusetningu gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára. Bólusett verður þann 18. ágúst nk. í félagsheimilinu Þingborg í Flóahreppi kl. 19:30 Forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð. Börnum í 7. […]
