Nemenda- og foreldraviðtöl 4. september
Kæru foreldrar/forráðmenn. Föstudaginn 4. september næstkomandi var fyrirhugað Kennaraþing Suðurlands en nú hefur það þing verið blásið af vegna fjöldatakmarkanna sem eru í gildi vegna Covid-19. Dagurinn var skráður sem leyfisdagur nemenda á skóladagatali. Vegna þessa svigrúms sem skapast hefur í skóladagatalinu langar okkur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri að nota tækifærið og efla samstarf heimila og skólans. […]
Skólasetning Barnaskólans haustið 2020
Skólasetning Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fer fram mánudaginn 24. ágúst 2020. Vegna fjöldatakmarkanna verður skólasetning í þrennu lagi eða sem hér segir: Kl. 09:00 Nemendur í 2. – 3. bekkur, f. 2012-2013 Kl. 10:00 Nemendur í 4. – 6. bekkur, f. 2009-2011 Kl. 11:00 Nemendur í 7. – 10. bekkur, f. 2005-2008 […]
Frábærir íþrótta- og útivistardagar
Síðustu þrír skóladagar skólaársins 2019-2020 voru skipulagðir með íþróttir og útivist í forgrunni. Nemendur fóru í vettvangsferð á Þingvelli, göngu- og sundferð í Hveragerði, útivistardaga í Hallskot, kayak á Stokkseyri og sameiginlegan stöðvadag beggja skólastiga. Á lokadeginum fór svo íþróttakeppnin Járnkrakkarnir fram í annað sinn en þar keppa nemendur í þríþraut – sundi, hjólreiðum og […]
Skólaslit og útskrift 10. bekkjar
Skólaslit fara fram í 1. – 9. bekk föstudaginn 5. júní. Útskrift nemenda 1. – 6. bekkja fer fram á Stokkseyri kl. 9:00 og útskrift nemenda í 7. -9. bekk á Eyrarbakka kl. 9:15. Ekki er óskað eftir aðkomu foreldra að skólaslitum vegna Covid19 varúðarráðstafanna. 09:00 1.-6. bekkur á Stokkseyri 09:15 7.-9. bekkur á Eyrarbakka […]
Starfakynning í BES
Á dögunum kynntu nemendur í 10. bekk Barnaskólans heimsóknir sínar á vinnustaði sem fram fóru fyrr í vetur. Það er hefð fyrir því í Barnaskólanum að nemendur kynni sér atvinnulifið á lokaári grunnskólans og miðli svo reynslu sinni og upplifun til annarra á unglingastigi. Að lokinni glæsilegri kynningu steig svo nýstofnuð kennarahljómsveit á stokk og […]