Fréttir

Enginn skólabíll að svo stöddu í dag 27. apríl

Mikið snjóaði í nótt og illfært er að skólunum og aðstæður erfiðar og því mun skólabíllinn ekki keyra þennan morguninn. Við bíðum svara varðandi framhaldið í dag frá GTS. Skólinn opnar á venjulegum tíma og við tökum við börnunum en því miður er ekki morgunakstur. Við setjum inn tilkynningu hér um leið og við höfum

Enginn skólabíll að svo stöddu í dag 27. apríl Read More »

Smiðja í boði Listasafns Árnesinga – Langspil

Einn góðan dag í mars mætti Eyjólfur Eyjólfsson þjóðfræðingur, tónlistarmaður og tónskáld í tónmenntatíma hjá 6. bekk.  Þar kynnti hann fyrir nemendum langspil, sögu þess og notkun.  Nemendur fengu svo að prófa hinar ýmsu aðferðir við að spila á langspil m.a. plokka og nota boga eða fjöður.  Nemendur sýndu þessu áhuga og skemmtu sér vel.

Smiðja í boði Listasafns Árnesinga – Langspil Read More »

Memory, architecture and Identity

Nemendur í 8. – 10. bekk fengu heimsókn í lífsleiknitíma í vikunni. Það var listasmiðja í boði Listasafns Árnesinga sem ber nafnið ,,Memory, architecture and Identity“. Leiðbeinandinn heitir Yara Zein en hún kemur frá Líbanon og hefur verið búsett á Íslandi í eitt og hálft ár. Hún fjallaði um samfélagsleg málefni í Líbanon, ólíkan menningarheim

Memory, architecture and Identity Read More »

Stóra upplestrarkeppni Árborgar

Í dag var Stóra upplestrarkeppni Árborgar 2023 haldin við hátíðlega athöfn í Sunnulækjarskóla. Þar öttu kappi níu frambærilegir nemendur úr Vallaskóla, Sunnulækjarskóla og Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, þrír frá hverjum skóla. Fulltrúi frá BES, Kristrún Birta Guðmundsdóttir, lenti í 3ja sæti og hlaut hún bæði viðurkenningu og verðlaun fyrir. Skólinn hlaut einnig viðurkenningu fyrir

Stóra upplestrarkeppni Árborgar Read More »

Textílsmiðja í boði Listasafns Árnesinga

Nemendur í 5. bekk í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri voru þessa og síðustu viku í textílsmiðju sem var samstarfsverkefni skólans, Listasafns Árnesinga og Ástu Guðmundsdóttur. Listasafn Árnesinga fékk hina ýmsu listamenn til að fara með margvíslegar smiðjur í skólana, skólunum að kostnaðarlausu. Við í BES erum einstaklega þakklát fyrir svona skemmtilegt samstarf í nærsamfélaginu.

Textílsmiðja í boði Listasafns Árnesinga Read More »