Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Norræna skólahlaupið

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 9. september 2014

  Norræna skólahlaupið verður haldið í BES eins og undanfarin ár, hlaupið verður 10. september n.k. og taka allir nemendur skólans þátt. Markmiðið er að ná sem bestum sameiginlegum árangri, hlaupa sem flesta km. samtals. 1. – 6. bekkur hleypur á Stokkseyri og 7. – 10. bekkur hleypur á Eyrarbakka. Val er um að hlaupa 2,5 […]

Boðað til fundar með foreldrum og forráðamönum 9. og 10. bekkinga

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 27. ágúst 2014

Fimmtudaginn 28. ágúst n.k. er boðað til foreldrafundar í húsnæði skólans á Eyrarbakka kl. 17:30-18:30. Fundarefni eru tvö:   1. Sameiginleg kennsla og umsjón 9. og 10. bekkja. 2. Fundur með foreldrum/forráðamönnum 10. bekkinga um fyrirhugaða útskrifta-/vorferð.   Fundurinn er eingöngu fyrir foreldra eða forráðamenn.   Með von um góða mætingu, Skólastjórnendur

Kynningadagar á Eyrarbakka

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 22. ágúst 2014

Mánudaginn 25. og þriðjudaginn 26. ágúst verða óhefðbundnir dagar í skólanum á Eyrarbakka. Nemendur mæta í skólann kl. 8:15 í umsjón en munu svo sækja fyrirlesta og kynningasmiðjur á mismunandi þáttum skólastarfsins í vetur. Um er að ræða smiðjur s.s. hópefli, námstækni, félagsmál o.fl. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 27. ágúst. Sjáumst hress á mánudaginn, Stjórnendur

22.8.2014 Skólasetning

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 22. ágúst 2014

Skólasetning er föstudaginn 22. ágúst. Nemendur og forráðamenn 1. – 6. bekkinga mæta í húsnæði skólans á Stokkseyri kl. 09.00 og nemendur og forráðmenn 7. – 10. bekkinga mæta í húsnæði skólans á Eyrarbakka kl. 11.00 Ferðir verða frá Eyrarbakka kl. 8.45  fyrir þá sem þess þurfa vegna skólasetningar á Stokkseyri og frá Stokkseyri 10.45 […]

Skólasetning

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 7. ágúst 2014

Skólasetning á Stokkseyri kl 9:00 og á Eyrarbakka kl. 11:00.