Víkingar í heimsókn
Dorothee, mamma hennar Sunnu í 4. bekk, kom í dag og sýndi okkur ýmis konar fatnað, muni og myndir tengt víkingatímabilinu. Einnig kom hún með myndir af ferðalögum sínum á víkingaslóðir. Nemendur voru mjög áhugasamir og fengu að máta fötin og prófa munina og vakti það mikla kátínu. Ragnar smíðakennari kom einnig með stórt sverð […]
Góður gestur
Miðvikudaginn 6. nóvember mætti Eyþór Ingi í skólann á Eyrarbakka og Stokkseyri og skemmti börnunum með söng sem þau tóku vel undir. Einnig gaf hann sér góðan tíma á eftir með þeim og flest fengu eiginhandaráritun.
Góð gjöf til grunnskóla Árborgar
Gunnar Egilsson og Sæunn Lúðvíksdóttir komu færandi hendi í skólann okkar í morgun. Þau gáfu grunnskólum Árborgar 15 taflborð og taflmenn til að hvetja til aukinnar skákiðkunar í skólunum. Skák er vel til þess fallin að þroska gagnrýna hugsun og krefst þess að skákmaðurinn ígrundi hvern leik og hugsi hverja skákfléttu til enda. Við þökkum […]
Dagur gegn einelti
Í dag er dagur gegn einelti. Við héldum hann hátíðlegan með því að setja saman púsl sem nemendur allra bekkja hafa unnið. Púslið er hringur sem á að tákna eineltishringinn og minna okkur á vináttu og samkennd. Myndin í fullri stærð
Norræna skólahlaupið 2013
Miðvikudaginn 30. október n.k. ætla nemendur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri að taka þátt í Norræna skólahlaupinu. Hlaupið verður kl. 12:35 á Stokkseyri, 1.-5. bekkur hleypur 2,5 km. og 6.-10. bekkur 5 km. Mælst er til þess að börnin mæti í góðum skóbúnaði til hlaupa og í þægilegum fötum til hreyfingar. ___________________________________________________________ Um […]