Upplestrarkeppnin
Stóra-upplestrarkeppnin var haldin í Sunnulæk 7.mars kl. 14. Ásdís María Magnúsdóttir og Signý Ósk Vernharðsdóttir tóku þátt fyrir hönd 7.bekkjar BES og stóðu sig með glæsibrag.
Öskudagur
Á öskudaginn mættu nemendur grímuklæddir í skólann. Dagurinn hófst með venjulegri stundaskrá fram að frímínútum. Eftir frímínútur tók við léttari dagskrá þar sem nemendur fóru í skrúðgöngu um þorpið, slógu köttinn úr tunnunni og dönsuðu. Nokkrar myndir frá öskudeginum
Lífshlaupið
Fjórði bekkur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri er, ásamt öðrum bekkjum skólans, þátttakandi í Lífshlaupinu. Þann 31. janúar sl. var bekkurinn dreginn út í Hvatningarleik RÁSAR 2 og ÍSÍ, sem er í tengslum við Lífshlaupið. Vinningurinn var ávaxtasending frá ávaxtasérfræðingum Ávaxtabílsins. Þessi vinningur barst 4. bekk þann 15. febrúar og runnu ávextirnir ljúflega niður hjá krökkunum. […]
BESta upplestrarkeppnin í 7.bekk
Nemendur í 7. bekk hafa verið að æfa sig í framsögn undanfarið vegna þátttöku í Stóru upplestrarkeppninni. Í tilefni af því var haldin keppni innan bekkjarins til að velja þátttakendur í stóru keppnina. Foreldrum og 6. bekk var boðið að vera áhorfendur og voru 4 dómarar. Allir nemendurnir stóðu sig með glæsibrag og geta
Kynfræðsla fyrir nemendur á unglingastigi
Mánudaginn 21. janúar nk. mun hún Sigga Dögg kynfræðingur koma með kynfræðslu inn í skólann fyrir nemendur í 8. – 10. bekk skólans. Boðið er upp á þessa fræðslu í öllum Skólum Árborgar og foreldrum jafnframt boðið að koma á kynningu í kjölfarið. Fyrirlesturinn fyrir foreldra barna í Barnaskóla Eyrarbakka og Stokkseyrar er mánudaginn 21. janúar kl. 17.15 – […]