Akstur skólabíla fellur niður
Skólabílar ganga ekki í dag vegna veðurs við Barnaskólann Eyrarbakka og Stokkseyri. Staðan verður tekin þegar líður á morguninn, mögulega fer aksturinn í gang á ný ef veðrinu slotar. Skólarnir verða opnir fyrir þá nemendur sem komast í skólann í dag og eru ekki háðir akstri skólabíla. Uppfært kl. 9:47 Af höfðu samráði við GT […]
Skólastarf fellur niður mánudaginn 7. febrúar vegna veðurs
Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðurland á morgun mánudaginn 7. febrúar. Vegna þess hefur yfirstjórn Árborgar ákveðið að skólastarf í sveitarfélaginu falli niður. Nánari upplýsingar veita stjórnendur. Stjórnendur
Starfsdagur og nemenda- og foreldraviðtöl
Fimmtudaginn 3. febrúar er starfsdagur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Kennarar og starfsmenn skólans nýta þann dag til undirbúnings fyrir nemenda- og foreldraviðtölin sem fram fara föstudaginn 4. febrúar. Foreldraviðtölin fara fram í fjarfundarbúnaði en einnig í staðviðtölum þar sem þess hefur verið óskað. Mikilvægt er að muna að nemandi er í forgrunni í […]
Nýjar reglur vegna Covid-19
Í dag komu út nýjar reglur vegna Covid-19 en þær taka gildi á miðnætti. Reglurnar er að finna á vef Stjórnarráðsins www.stjornarradid.is. Þar má t.a.m. finna spurt og svarað vegna hinna nýju reglna. Það helsta er varðar skólstarfið er þetta:Heilbrigðisráðherra hefur gert breytingar á reglum um sóttkví og smitgát sem taka gildi frá og með miðnætti […]
Skólastarf fellur niður vegna slæmrar veðurspár kl. 9:35 í dag
Að höfðu samráði við GT rútufyrirtæki þurfum við að koma öllum nemendum heim fyrir kl. 10 núna í morgunsárið. Rútufyrirtækið metur stöðuna þannig að ekki sé óhætt að halda uppi akstri í því veðri sem spáð er. Skólabíll fer frá Stokkseyri kl. 9:35 á Eyrarbakka og kl. 9:55 frá Eyrarbakka á Stokkseyri. Frístund verður lokuð […]