Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Starfsdagur grunnskóla og frístundaheimila í Árborg nk. mánudag 16. mars.

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 13. mars 2020

Vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga í grunnskólum Árborgar, í ljósi fyrirmæla heilbrigðisyfirvalda, mun áætlaður starfsdagur 18. mars færast til mánudagisins 16. mars nk. Því fellur almennt skólastarf niður nk. mánudag sem og frístundastarf yngstu barnanna. Starfsdagurinn verðu nýttur af stjórnendum og starfsfólki til enduskipulagningar starfsins. Stjórnendur BES

Aðgerðir Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri vegna COVID19

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 13. mars 2020

Kæru foreldrar/forráðamenn.   Við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri starfa nú tvö viðbragðsteymi vegna COVID19. Annað teymið starfar á starfsstöð á Stokkseyri og hitt á Eyrarbakka. Teymin funda daglega og saman eftir þörfum. Teymið á Stokkseyri skipa Magnús J. Magnússon skólastjóri, Sigríður Pálsdóttir deildarstjóri, Karl Óskar Svendsen húsvörður,Vigdís Unnur Pálsdóttir ritari og Ágústa Baldursdóttir matráður. Teymið á Eyrarbakka skipa Páll Sveinsson aðstoðarskólastjóri, […]

Dale Carnegie námskeið fyrir unglinga

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 7. febrúar 2020

Á vorönn mun Dale Carnegie bjóða upp á námskeiðið „Næsta kynslóð“ fyrir ungmenni á aldrinum 14 – 16 ára (fædd 2004-2006). Námskeiðið er haldið í samstarfi við félagsmiðstöðina Zelsiuz og forvarnarhóp Sveitarfélagsins Árborgar. Námskeiðið er í 9 skipti, einu sinni í viku í 3,5 tíma í senn og verður haldið á fimmtudögum. Námskeiðið hefst fimmtudaginn […]

Skipulagsdagur og foreldraviðtöl

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 28. janúar 2020

Mánudaginn 3. febrúar n.k. er skipulagsdagur kennara og fellur því venjulegt skólahald niður. Þriðjudaginn 4. febrúar er nemenda- og foreldraviðtaladagur þar sem nemendur mæta með foreldrum eða forráðamönnum í viðtal hjá umsjónarkennara. Viðtölin fara fram í skólahúsnæðinu á Stokkseyri og erum foreldrar/forráðamenn hvattir til að bóka viðtalstíma á Mentor.

Þorrinn boðinn velkominn

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 28. janúar 2020

Nemendur og starfsfólk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fögnuðu Þorra síðastliðinn Bóndadag með samsöng á sal skólans. Þorraþrællinn var sunginn ásamt nokkrum vel völdum lögum. Að sjálfsögðu var svo boðið upp á dýrindis þorramat í hádeginu við miklar og góðar undirtektir.