Enginn skólaakstur í dag 8.1.2020
Skólaakstur fellur niður í dag vegna veðurs. Skólarnir verða báðir opnir, en forráðamenn verða að meta hvort nemendur mæta í skólann. Formlegt skólahald verður í lágmarki. Við munum fylgjast áfram með veðri og setja fréttir inn á heimasíðu og facebook síðu ásamt því að senda póst.
Veðurviðvörun
Veðurútlit fyrir næsta sólarhring er ekki gott. Spáin er 20 -23 m/s eftir hádegi í dag. Vegna þessa mun rútan ekki vera í akstri eftir kl. 13:00 Þetta gerir það að verkum að skólahald fellur niður eftir kl. 12:30. Þá munu nemendur fara heim. Það er gul viðvörun frá Veðurstofu til kl. 13 á morgun […]
Jólaleyfi í Barnaskólanum
Um leið og starfsfólk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri óskar nemendum og forráðamönnum þeirra gleðilegra jóla viljum við þakka samstarfið og samveruna á árinu sem er að líða. Skólastarf hefst að jólaleyfi loknu föstudaginn 3. janúar 2020 samkvæmt stundaskrá.
Skólaakstur fellur niður í dag 11. desember
Skólaakstur við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri fellur niður í dag vegna veðurs. Skólinn opnar kl. 7:30 en reynt verður að halda uppi kennslu samkvæmt stundaskrá. Mælst er til þess að foreldrar/forráðamenn meti hvort þeir geti ekið börnum sínum til og frá skóla út frá aðstæðum. Ef forráðamenn senda nemendur ekki í skólann skal […]
Röskun á skólahaldi og íþróttastarfi
Kæru foreldrar/forráðamenn. Eins og flestum ætti að vera kunnugt er veðurspá fyrir næstu tvo daga slæm. Veðrið kemur til með að versna seinnipartinn í dag og mun haldast slæmt fram á morgundaginn. Ekki verða neinar breytingar á skólastarfi í dag en við biðjum foreldra/forráðamenn að vera vakandi fyrir tilkynningum varðandi skólastarf morgundagsins. Hér að neðan […]