Tóbakslaus bekkur
Nemendur 9. bekkjar fengu senda flotta vatnsbrúsa frá embætti landlæknis á dögunum fyrir að vera tóbakslaus. Þau eru hér á mynd ásamt sínum umsjónarkennara, Kareni Heimisdóttur.
Nemendur 9. bekkjar fengu senda flotta vatnsbrúsa frá embætti landlæknis á dögunum fyrir að vera tóbakslaus. Þau eru hér á mynd ásamt sínum umsjónarkennara, Kareni Heimisdóttur.
Undakeppni Stóru upplestrakeppninnar fór fram í dag á Stokkseyri en þar kepptu 7. bekkingar sín á milli um sæti í liðinu sem keppir í Sunnulækjarskóla 29. mars n.k. Það voru þau Böðvar Arnasson, Sunna M. Kjartansdóttir Lubecki og Eydís Yrja Jónsdóttir sem lásu sig inn í liðið og María Björg Jónsdóttir verður varamaður. Glæsilegt hjá
Keppendur 7. bekkjar í Stóru upplestrarkeppninni Read More »
Miðvikudaginn 15. mars fór fram Suðurlandsriðill Skólahreystis í íþróttahöll Stjörnunar í Garðabæ. Skemmst er frá því að segja að Barnaskólinn (BES) sigraði riðilinn með fjórum stigum og er þar af leiðandi kominn í úrslitakeppnina sem fram fer í Laugardalshöll 26. apríl. Sannarlega stórglæsilegur árangur hjá liði BES en skólinn náði 4. sæti í fyrra. Nemendur
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri sigraði Suðurlandsriðil Skólahreystis Read More »
Nemendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri eru sannkallaði lestarhestar því annað árið í röð náðist stórglæsilegur árangur í keppninni Allir lesa. Yngsta stig og miðstig Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri tóku þátt í allirlesa.is þriðja árið í röð en stigin voru skráð í opinn flokk, fjöldi 30-50 manns. Í fyrra vann miðstigið en í ár var það yngsta
Tryggðum okkur sigur annað árið í röð! Read More »
Vettvangsferð nemenda í 3. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri á Selfoss mánudaginn 6. mars sl. Hugmyndin að þessari ferð var sú að nemendur í BES fóru með jákvæð orð í nokkrar stofnanir við ströndina á baráttudegi gegn einelti þann 8. nóv. sl. Okkur langaði alltaf að láta Hamingjukrukkurnar með jákvæðu orðunum flæða upp á
Hamingjuboðskapurinn útbreiddur Read More »
Nemendur og starfsfólk BES voru sannarlega skemmtilega klædd og í allskyns búningum og gerfum á Öskudaginn. Kötturinn var sleginn úr tunninni og sungið og dansað á sal skólans. Frábær dagur í alla staði!
Líflegur og fagur Öskudagur Read More »