Sigríður Pálsdóttir

Veðurviðvörun

Veðurútlit fyrir næsta sólarhring er ekki gott. Spáin er 20 -23 m/s eftir hádegi í dag. Vegna þessa mun rútan ekki vera í akstri eftir kl. 13:00 Þetta gerir það að verkum að skólahald fellur niður eftir kl. 12:30. Þá munu nemendur fara heim. Það er gul viðvörun frá Veðurstofu til kl. 13 á morgun

Veðurviðvörun Read More »

Skólaakstur fellur niður í dag 11. desember

  Skólaakstur við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri fellur niður í dag vegna veðurs. Skólinn opnar kl. 7:30 en reynt verður að halda uppi kennslu samkvæmt stundaskrá. Mælst er til þess að foreldrar/forráðamenn meti hvort þeir geti ekið börnum sínum til og frá skóla út frá aðstæðum. Ef forráðamenn senda nemendur ekki í skólann skal

Skólaakstur fellur niður í dag 11. desember Read More »

Röskun á skólahaldi og íþróttastarfi

Kæru foreldrar/forráðamenn. Eins og flestum ætti að vera kunnugt er veðurspá fyrir næstu tvo daga slæm. Veðrið kemur til með að versna seinnipartinn í dag og mun haldast slæmt fram á morgundaginn. Ekki verða neinar breytingar á skólastarfi í dag en við biðjum foreldra/forráðamenn að vera vakandi fyrir tilkynningum varðandi skólastarf morgundagsins. Hér að neðan

Röskun á skólahaldi og íþróttastarfi Read More »

Baráttudagur gegn einelti

Árlega heldur Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri Olweusardaginn gegn einelti hátíðlegann. Í ár sameinuðust nemendur á Stokkseyri þar sem vinabekkir fóru í leiki saman og áttu glaða og góða stund. Í skólanum starfar samskiptateymi sem vinnur ötullega að forvörnum gegn einelti, skipuleggur dag eins og þennan og mælir á hverju ári einelti við skólann. Einnig

Baráttudagur gegn einelti Read More »

Dagur íslenskrar tungu

Nemendur 6. og 7. bekkja Barnaskólans héldu upp á Dag íslenskrar tungu sem er 16. nóvember með því að heimsækja leikskólana við ströndina og flytja ljóð fyrir nemendur og starfsfólk. Krakkarnir stóðu sig prýðis vel og fengu góðar móttökur. Nemendur 7. bekkjar hófu um leið undirbúning fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem fram fer í febrúar á

Dagur íslenskrar tungu Read More »

Barnaskólinn og Erasmus+

Þann 29. september – 2. október síðastliðinn fór fram Erasmus+ tengslaráðstefna í Turku í Finnlandi. Sigríður Pálsdóttir deildarstjóri yngra stigs fór sem fulltrúi Íslands ásamt Sigríði H. Pálsdóttur leikskólastjóra frá Egilsstöðum.  Þær fræddust um Erasmus+ og kynntust fólki frá öðrum löndum Evrópu.  Markmið ráðstefnunnar var að mynda tengsl og búa til verkefni í samstarfi við 3-5 aðrar

Barnaskólinn og Erasmus+ Read More »