Sigríður Pálsdóttir

Marita fræðsla

  Tvö andlit eiturlyfja Foreldranámskeið um skaðsemi og einkenni eiturlyfjaneyslu. Sýnd verður heimildarmynd um ungt fólk á Íslandi sem er, eða hefur verið, fast í fíkniefnaneyslu. Viðtöl eru tekin við þetta unga fólk, allt niður í 15 ára gamalt, þar sem það segir sína sögu. Fullorðnir fá að sjá svipað prógram og unglingarnir, sem gerir

Marita fræðsla Read More »

Víkingar í heimsókn

Dorothee, mamma hennar Sunnu í 4. bekk, kom í dag og sýndi okkur ýmis konar fatnað, muni og myndir tengt víkingatímabilinu. Einnig kom hún með myndir af ferðalögum sínum á víkingaslóðir. Nemendur voru mjög áhugasamir og fengu að máta fötin og prófa munina og vakti það mikla kátínu. Ragnar smíðakennari kom einnig með stórt sverð

Víkingar í heimsókn Read More »

Góð gjöf til grunnskóla Árborgar

Gunnar Egilsson og Sæunn Lúðvíksdóttir komu færandi hendi í skólann okkar í morgun.  Þau gáfu grunnskólum Árborgar 15 taflborð og taflmenn til að hvetja til aukinnar skákiðkunar í skólunum.  Skák er vel til þess fallin að þroska gagnrýna hugsun og krefst þess að skákmaðurinn ígrundi hvern leik og hugsi hverja skákfléttu til enda. Við þökkum

Góð gjöf til grunnskóla Árborgar Read More »

Norræna skólahlaupið 2013

Miðvikudaginn 30. október n.k. ætla nemendur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri að taka þátt í Norræna skólahlaupinu. Hlaupið verður kl. 12:35 á Stokkseyri, 1.-5. bekkur hleypur 2,5 km. og 6.-10. bekkur 5 km. Mælst er til þess að börnin mæti í góðum skóbúnaði til hlaupa og í þægilegum fötum til hreyfingar.   ___________________________________________________________ Um

Norræna skólahlaupið 2013 Read More »

Bansadagur

Mánudaginn 28. október verður bangsadagur í skólanum á Stokkseyri.  Nemendur mæta í náttfötum með bangsa og sparinesti. Skólahald brotið upp í lok dags.  Gæta þarf vel að hlífðarfötum og góðum undirfatnaði.  Kær kveðja Bangsateymið

Bansadagur Read More »

Haustfrí

Kæru forráðamenn! Minnum ykkur á haustfríið núna á föstudaginn 18. október og komandi mánudag 21. október. Skóli hefst svo aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 22. október Athugið að skólavistin Stjörnusteinar er einnig lokuð þessa daga. Bestu kveðjur  Stjórnendur BES.

Haustfrí Read More »