Gleðileg jól!
Starfsfólk Barnaskólans á Eyrabakka og Stokkseyri senda jóla og ármótakveðjur til nemenda og fjölskyldna þeirra og þakka samstarfið á árinu sem er að líða. Skólastarf hefst á nýju ári samkvæmt stundaskrá 5. janúar.
Starfsfólk Barnaskólans á Eyrabakka og Stokkseyri senda jóla og ármótakveðjur til nemenda og fjölskyldna þeirra og þakka samstarfið á árinu sem er að líða. Skólastarf hefst á nýju ári samkvæmt stundaskrá 5. janúar.
Skólastarfi fyrir jól lýkur að venju með jólaskemmtun sem haldin verður á Stokkseyri 19. desember. Nemendur mæta til skóla klukkan 09.00. Dagurinn hefst á hátíðarstund í stofum með umsjónarkennara. Skólabíll fer frá Stokkseyri kl. 8:30 og frá Eyrarbakka kl. 8:45. Í skólastofunni skiptast börnin á jólagjöfum (lítilli vinargjöf) og þurfa því allir að leggja til einn
Litlu jól 19. desember Read More »
Í dag þriðjudag 16.des lýkur skóla kl. 13:15 og fara þá öll börn heim. Jóladansleikir sem vera áttu í dag falla niður. Skólavist verður opin eins og venjulega. Stjórnendur
Vetrarveður í kortunum Read More »
Í dag 12. desember komu allir nemendur í 1.-6. bekk með sparinesti. Ljúf og góð jólastemning myndaðist á meðan kjamsað var á gúmmelaðinu, eins og sjá má!
Smákökudagur á Stokkseyri Read More »
Vegna versnandi veðurspár lýkur skólastarfi í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri í hádeginu í dag. Nemendum á Eyrarbakka hefur verið ekið heim ásamt nemendum frá Stokkseyri. Nemendur 1. – 6. bekkjar fara heim með skólabíl kl. 13:15. Fyrirhuguðum jólaböllum dagsins hefur verið frestað, nánar um nýja dagsetningu síðar. Stjórnendur
Skólahald fellur niður eftir hádegi miðvikudaginn 10. desember Read More »
Skólahúsnæði BES hefur tekið stakkaskiptum undanfarna daga en nemendur og starfsmenn hafa skreytt skólana síðustu daga og þannig lagt sitt af mörkum í því verki að lýsa upp heiminn hér á norðurhjaranum. Nemendur og starfsfólk létta sér biðina til jóla með samsöng en jólalögin eru sungin nokkra morgna fram að jólum. Jólaböll fara svo fram
Jólin koma – jólaböll Read More »
Þar sem veðrinu hefur slotað verður allt með eðlilegum hætti í skólanum i dag og skólakstur með venjubundnum hætti! Stjórnendur
Kennsla og skólaakstur með óbreyttum hætti! Read More »
Vegna veðurútlits mánudaginn 1. des biðjum við forráðamenn nemenda okkar að fylgjast með tilkynningum í ríkisútvarpi á mánudagsmorgni varðandi skólahald og skólaakstur. Einnig mun tilkynning koma inn á heimasíðu skólans! Stjórnendur
Veðurúlit mánudaginn 1. des. 2014 Read More »
Nemendur í 1. bekk fara í leikskólaheimsókn fimmtudaginn 20. nóvember kl. 8:15 – 10:30. Börnin eiga að mæta í leikskólann sinn þennan morgun. Börn sem voru á Æskukoti mæta þangað og börn sem voru á Brimveri mæta þangað. Starfsmaður fer með börnunum á báða staðina, börnin borða morgunmat í leikskólanum. Eftir heimsóknina förum við í
Heimsókn á leikskólana Read More »
Starfsdagur kennara er mánudaginn 17. nóvember og þá er frí hjá nemendum. Viðtalsdagur er þriðjudaginn 18. nóvember og fara viðtöl fram á Stokkseyri. Foreldrar fá úthlutað viðtalstíma með börnum sínum. Ef tíminn hentar ekki hafið þið samband við umsjónarkennara. Skólavistin er opin frá 07.45 þessa daga og eru forráðamenn beðnir um að láta skólavistina vita
Starfsdagur og foreldraviðtöl í BES Read More »