Sigríður Pálsdóttir

Frábær upplestarkeppni á Stokkseyri

Fimmtudaginn 12. mars var stóra upplestrarkeppnin haldin hér á Stokkseyri. Fimmtán frábærir lesarar tóku þátt í keppninni frá fimm skólum. Öflug dómnefnd var á vaktinni og tæplega eitthundrað áhorfendur nutu upplestrarins. Rammi hátíðarinnar var glæsilegur sem og öll framkvæmdin. Allir lesrara stóðu sig með prýði og hafði yfirdómarinn það á orði að hann hefði aldrei dæmt

Frábær upplestarkeppni á Stokkseyri Read More »

Breytingar á skólahaldi 1. – 6. bekkjar 12. mars

Næstkomandi fimmtudag, 12. mars, verður Stóra upplestarkeppnin haldin í húsnæði skólans á Stokkseyri. Fulltrúar 5 grunnskóla taka þátt í keppninni hér á Stokkseyri. Keppnin hefst kl. 14.00 en æfingar og annað byrjar kl. 13.00. Þar sem töluvert umstang fylgir slíkri keppni og þar sem þarf að vera algjört hljóð á meðan æfingum stendur, auk annars

Breytingar á skólahaldi 1. – 6. bekkjar 12. mars Read More »

Stóra upplestarkeppnin á Stokkseyri 12. mars 2015

Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar fer fram á Stokkseyri 12. mars næstkomandi kl. 14:00. Þar munu nemendur úr 7. bekkjum frá Barnaskólanum á Stokkseyri og Eyrarbakka, Grunnskólanum í Hveragerði, Grunnskólanum í Þorlákshöfn, Vallaskóla og Sunnulækjarskóla etja kappa í upplestri. Á dögunum fór undankeppni BES fram og voru þær Tanja, Sigurbjörg og Lilja valdar fulltrúar BES ásamt varamönnunum

Stóra upplestarkeppnin á Stokkseyri 12. mars 2015 Read More »

Foreldraviðtöl og vorfrí

Verkefnadagur kennara er þriðjudaginn 24. febrúar og þá er frí hjá nemendum. Viðtalsdagur er miðvikudaginn 25. febrúar og fara viðtöl fram á Stokkseyri. Foreldrar fá úthlutað viðtalstíma með börnum sínum. Ef tíminn hentar ekki hafið þið samband við umsjónarkennara. Skólavistin er opin frá 07.45 þessa daga og eru forráðamenn beðnir um að láta skólavistina vita

Foreldraviðtöl og vorfrí Read More »

Fjáröflunar- og súputónleikar

Sunnudaginn 22. febrúar  verða haldnir fjáröflunar- og súputónleikar í sal skólans á Stokkseyri.  Núverandi og fyrrverandi nemendur skólans spila og syngja og einnig eru þarna starfsmenn og foreldrar sem koma fram. Hugmyndin með þessum tónleikum er að safna fyrir tónmenntastofuna okkar. Tónleikarnir hefjast kl. 12.00 og að þeim loknum er boðið upp á súpu og brauð gegn

Fjáröflunar- og súputónleikar Read More »

Öskudagurinn í BES

Á öskudaginn mega nemendur á 1. – 6. bekkjar á Stokkseyri  koma grímubúin í skólann og verðum við með sérstaka dagskrá í tilefni dagsins. Dagurinn hefst með hefðbundinni kennslu nema hvað nemendur fara ekki í sund og í íþróttahúsi fá börnin að vera í sínum grímubúning.  Hádegismatur verður kl. 11:25 og klukkan 12:10 hefst öskudagsdagskráin

Öskudagurinn í BES Read More »

Innritun í grunnskóla skólaárið 2015−2016

Innritun barna sem eru fædd árið 2009 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2015 fer fram 18.−27. febrúar næstkomandi. Hægt er að innrita rafrænt á Mín Árborg eða á eyðublöðum sem eru aðgengileg á heimasíðum grunnskólanna og í Ráðhúsinu. Þeim umsóknum á að skila í viðkomandi skóla. Upplýsingar um skólahverfi hvers skóla

Innritun í grunnskóla skólaárið 2015−2016 Read More »