Fréttir

Röskun á skólahaldi og íþróttastarfi

Kæru foreldrar/forráðamenn. Eins og flestum ætti að vera kunnugt er veðurspá fyrir næstu tvo daga slæm. Veðrið kemur til með að versna seinnipartinn í dag og mun haldast slæmt fram á morgundaginn. Ekki verða neinar breytingar á skólastarfi í dag en við biðjum foreldra/forráðamenn að vera vakandi fyrir tilkynningum varðandi skólastarf morgundagsins. Hér að neðan

Röskun á skólahaldi og íþróttastarfi Read More »

Baráttudagur gegn einelti

Árlega heldur Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri Olweusardaginn gegn einelti hátíðlegann. Í ár sameinuðust nemendur á Stokkseyri þar sem vinabekkir fóru í leiki saman og áttu glaða og góða stund. Í skólanum starfar samskiptateymi sem vinnur ötullega að forvörnum gegn einelti, skipuleggur dag eins og þennan og mælir á hverju ári einelti við skólann. Einnig

Baráttudagur gegn einelti Read More »

Dagur íslenskrar tungu

Nemendur 6. og 7. bekkja Barnaskólans héldu upp á Dag íslenskrar tungu sem er 16. nóvember með því að heimsækja leikskólana við ströndina og flytja ljóð fyrir nemendur og starfsfólk. Krakkarnir stóðu sig prýðis vel og fengu góðar móttökur. Nemendur 7. bekkjar hófu um leið undirbúning fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem fram fer í febrúar á

Dagur íslenskrar tungu Read More »

Barnaskólinn og Erasmus+

Þann 29. september – 2. október síðastliðinn fór fram Erasmus+ tengslaráðstefna í Turku í Finnlandi. Sigríður Pálsdóttir deildarstjóri yngra stigs fór sem fulltrúi Íslands ásamt Sigríði H. Pálsdóttur leikskólastjóra frá Egilsstöðum.  Þær fræddust um Erasmus+ og kynntust fólki frá öðrum löndum Evrópu.  Markmið ráðstefnunnar var að mynda tengsl og búa til verkefni í samstarfi við 3-5 aðrar

Barnaskólinn og Erasmus+ Read More »

Vel heppnuð Skólavaka

Miðvikudaginn 16. október fór Skólavaka Barnaskólans á Eyrabakka og Stokkseyri fram í húsnæði skólans á Stokkseyri. Dagurinn hófst á samsöng á sal og svo ávarpaði Magnús J. Magnússon skólastjóri nemendur, starfsfólk og gesti en foreldrar og forráðamenn voru boðnir á skólakynningu þar sem nemendur og starfsmenn kynntu starf vetrarins. Unglingastig kynnti faggreinar í sal skólans

Vel heppnuð Skólavaka Read More »

Breytingar á skólahaldi 7. – 11. október

Kæru foreldrar/forráðamenn. Miðvikudaginn 9. október munu kennarar í Árborg hittast í skólaþróunarverkefni Árborgar kl. 13:00. Þetta þýðir að skólastarfi lýkur kl. 12:05 þennan dag og verður nemendum ekið heim að hádegisverði loknum eða kl. 12:35. Hið árlega haustþing kennara verður haldið á Selfossi föstudaginn 11. október.  Vegna þessa fellur kennsla niður þann dag. Frístundin Stjörnusteinar

Breytingar á skólahaldi 7. – 11. október Read More »